Öll erum við, sem betur fer, ólík. Allir ættu þó að geta tengt sig við einhverja af fjórum mismunandi manngerðum.
Sum okkar nota mikið táknmál líkamans við tjáningu. Aðrir kryfja mál til mergjar, eru rökfastir með og á móti. Enn aðrir fylgja tilfinningu og hjarta þegar ákvarðanir eru teknar og mat lagt á rétt eða rangt.
Elementin fjögur um manngerðirnar draga ekki fram persónuleika þátttakenda eins og þar til gerð próf geta gert. Hér er gamanið í fyrirrúmi en alvaran þó undirliggjandi. Þátttakendur eru á gamansaman hátt kynntir fyrir ríkjandi eiginleikum ólíkra manngerða sem tengja má við fjögur element jarðar, eld, ís, vatn og jörð.
Markmiðið er að auka skilning á eigin eiginleikum og annara og að saman vinnum við oft betur og getum áorkað meiru en sem einstaklingar.