IBT alþjóðlegt þjálfunarfyrirtæki, einnig þekkt sem PEPWORLDWIDE
IBT á Íslandi var stofnað sumarið 2005 . Við erum í Netlu, skrifstofugörðum, Nethyl 2b, 110 Reykjavík. Síminn er 578-1500 og 664-6555

Starfsmenn IBT-PEPWORLDWIDE á Íslandi eru hjónin Gunnar Jónatansson og Rósa Kristin Benediktsdóttir.

Gunnar er framkvæmdastjóri og aðalþjálfari IBT á Íslandi. Hann hefur próf í verkefnastjórnun frá HÍ og markþjálfun frá Evolvia og IBT Learning & Development. Gunnar var áður framkvæmdastjóri húsnæðisfélagsins Búseta hsf. Undanfarin tvö ár hefur Gunnar einnig sinnt framkvæmdastjórn Egilshallarinnar fyrir Reginn ehf.

PEPWORLDWIDE skipuleggur grunnþjálfun allra starfsmanna sinna og tekur Gunnar reglulega þátt í henni.

Gunnar stofnaði félagið Ungir frumkvöðlar og rekur það í sjálfboðaliðastarfi. Hann hefur verið mjög virkur í félagsstörfum í gegnum tíðina. Hann var um tíma landsforseti Junior Chamber á Íslandi og umsjónarmaður þjálfunar þeirra samtaka í Evrópu. Hann var í nokkur ár formaður Skautafélagsins Björninn.

Rósa Kristín er PEP þjálfari hjá IBT. Hún sinnir nú fyrst og fremst markaðsmálum fyrir IBT á jafnhliða því sem hún stundar nám við háskólann að Hólum og verkefnastjórnun hjá Ungum frumkvöðlum.
PEPWORLDWIDE skipuleggur grunnþjálfun allra starfsmanna sinna og tekur Rósa reglulega þátt í henni.

IBT á Íslandi er í eigu Gunnars, Rósu og Lenu Davidsson.