PEP er þjálfun til að auka skilvirkni starfsmanna. Farið er ítarlega í daglega verkefnastjórnun og ferli viðfangsefna sem renna í gegnum starfsstöð hvers og eins starfsmanns.
Þátttakendur fá tól og ráð sem nýtast við að stjórna öðru fólki en megináherslan er þó á að hafa stjórn á sjálfum sér. Að bera ábyrgð á eigin verkefnum og vinnutíma og finna muninn á því að vera við stjórn í stað þess að láta áreitið og umhverfið ráða ferðinni.
PEP dagarnir eru tveir til þrír byrja allir með 2ja klst námskeiði en síðan tekur við öflug einkaþjálfun við starfsstöð hvers og eins þátttakenda.
PEP er ætlað öllum starfsmönnum sem finnst þeir ekki hafa nægan tíma, eru undir miklu vinnuálagi og vilja breyta til og bæta sig í starfi. Starfsmenn læra hvernig hægt er að vinna með skynsamlegri hætti og hafa þannig fulla stjórn á verkefnum, gögnum, bæði pappír og rafrænum, læra að skipuleggja stök verkefni og sífelluverk þannig að verk hefjist og þeim ljúki á réttum tíma.
PEP þjálfun skilar ávinningi frá fyrsta degi.
Lykilorð PEP þjálfunar eru: Gerðu það núnaPEP er ætlað öllum starfsmönnum sem finnst þeir ekki hafa nægan tíma, eru undir miklu vinnuálagi og vilja breyta til og bæta sig í starfi. Starfsmenn læra hvernig hægt er að vinna með skynsamlegri hætti og hafa þannig fulla stjórn á verkefnum, gögnum, bæði pappír og rafrænum, læra að skipuleggja stök verkefni og sífelluverk þannig að verk hefjist og þeim ljúki á réttum tíma.
Markmiðið er bætt verkefnastjórnun og forgangsröðun
Markmið PEP þjálfunar er að auka yfirsýn, auka afköst, losa tíma, minnka álag og auka frítíma með því að draga úr freistunarávana. Að móttaka verkefni, koma þeim á dagskrá, fylgja þeim eftir og klára.Tími:
2-3 dagar, á vinnustað þátttakenda, með 3-5 vikna tíma milli hverrar heimsóknar sem eykur líkur á varanlega bættu vinnulagi.
PEP þjálfun fer fram á þínum vinnustað, inniheldur ólíka þætti sem allir miða að því að auka skilvirkni og hjálpa fólki að gera meira á minni tíma, auka þannig frítíma sinn og hagnað fyrirtækisins. Þjálfunin fer fram í minnst 4 manna hópum og mest 8, bæði í formi fyrirlestra en ekki síst með hverjum og einum þátttakanda við hans vinnustöð. Áður en þjálfunin hefst fer fram könnun meðal væntanlegra þátttakenda með það markmið að sníða efnið að hópnum og þörfum hvers og eins.
Hver dagur hefst með um tveggja tíma fyrirlestri. Að honum loknum fylgir þjálfari IBT hverjum þátttakanda eftir á hans vinnustöð og aðstoðar við að innleiða bættar aðferðir sem henta honum. Lungað úr deginum eiga því þátttakendur að sinnaPEP þjálfun við sitt skrifborð, með sín verkefni og tileinka sér þær aðferðir sem kenndar eru.
1. heimsókn, Skipulag:
Vinnuvenjur og ákvarðanataka.Þjálfun í Gerðu það núna hugmyndafræðinni við móttöku og framkvæmd verkefna. Skipulag vinnustöðvar og varsla á gögnum. Betri nýting á tölvupóstforritum eins og Outlook og Lotus Notes.
2. heimsókn, Áætlanagerð:Tímaþjófar og áreiti.
Greining á ráðstöfunartíma hvers og eins og notkun dagbókar til skipulagningar. Notkun verkefnalista og forgangsröðun verkefna. Vikuáætlun og verkefnaáætlun útbúin.
3. heimsókn Ástundun:
Áhersla á skilning og notkun aðferða frá fyrsta og öðrum degi. 80/20 lögmálið er skoðað nánar. Að auka skilvirkni er mikilvægt en mestu skiptir að gera réttu hlutina betur.Skipulag stafrænna gagna er skoðað frekar sem og meðhöndlun og umgengni við tölvupóst. Fjallað er um fundatækni og verkefnastjórnun og viðhorf til breytinga. Í einkaþjálfun er leitast við að skoða hvað hefur gengið vel og sér í lagi hvað betur má fara.
Lýsing:
PEP ( Personal Efficiency Program) þjálfun er verkleg, ætluð starfsmönnum til að bæta afköst, vinnuvenjur og auka skilvirkni. Farið er ítarlega í leiðir að markvissari tölvupóstssamskiptum. Ítarlegar leiðbeingar gefnar í notkun algengra forrita eins og Outlook og Lotus. Áherslan er á einstaklinginn en líka á teymi. Við skoðum leiðir til að að bæta teymisvinnu með skipulagðari vinnubrögðum. Hópavinna er sífellt fyriferðameiri í rekstri fyrirtækja og opnu rýminn kalla á aukna tilltissemi. Það er mikilvægt að reyna að draga sem mest úr áreiti og skapa vinnufrið.PEP þjálfun fer fram á þínum vinnustað, inniheldur ólíka þætti sem allir miða að því að auka skilvirkni og hjálpa fólki að gera meira á minni tíma, auka þannig frítíma sinn og hagnað fyrirtækisins. Þjálfunin fer fram í minnst 4 manna hópum og mest 8, bæði í formi fyrirlestra en ekki síst með hverjum og einum þátttakanda við hans vinnustöð. Áður en þjálfunin hefst fer fram könnun meðal væntanlegra þátttakenda með það markmið að sníða efnið að hópnum og þörfum hvers og eins.
Hver dagur hefst með um tveggja tíma fyrirlestri. Að honum loknum fylgir þjálfari IBT hverjum þátttakanda eftir á hans vinnustöð og aðstoðar við að innleiða bættar aðferðir sem henta honum. Lungað úr deginum eiga því þátttakendur að sinnaPEP þjálfun við sitt skrifborð, með sín verkefni og tileinka sér þær aðferðir sem kenndar eru.
Áhersla er á aðferðafræðina GERÐU ÞAÐ NÚNA.
Helstu áherslur hvers dags:1. heimsókn, Skipulag: