Sköpum verðmæti með þjálfun í nýrri hugsun!
Einn stærsti einstaki útgjaldaliður flestra fyrirtækja er launakostnaður - en starfsmönnum fylgir að sjálfsögðu ekki bara kostnaður heldur einnig tekjur. Mannauður er hugtak sem notað er um starfsmenn á tyllidögum og það er til mikils að vinna að skapa starfsumhverfi sem ýtir undir verðmætasköpun. Það er hægt að ná meiru út úr vinnudegi hvers og eins en ólíkt því sem flestir myndu halda í fyrstu er það gert með því að MINNKA álag á starfsmenn. Minna álag - aukin afköst!
Flestir kannast við þreytuna og streituna sem fylgir því að vera með of marga bolta á lofti í einu. Í vinnunni endurspeglast þetta í því að skrifborðið verður hlaðið gögnum og innboxið í tölvunni yfirfullt af pósti, bæði afgreiddum sem óafgreiddum. Hugurinn er sífellt með leitarvélina í gangi, spyrjandi hvort eitthvað hafi gleymst: Átti ég að sækja börnin eða versla á leiðinni heim, hverju þarf ég að ljúka í dag til að vera tilbúinn á morgun? PEP þjálfun leysir þetta - álag verður minna og afköst aukast. Niðurstaðan er allra hagur.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Jónatansson, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , sími 578 1500.
Er tölvupósturinn að verða að sjálfstæðu hlutastarfi?
Tölvupósturinn er orðið eitt af aðalverkfærunum við skrifborðið. Gríðarlegur fjöldi pósta fer á milli manna, stundum með mikilvægu innihaldi en alltof oft er hann innihaldsrýr og óþarfur. Mikið áreiti skapast af þessu póstflæði og vinnufriðurinn er rofinn í tíma og ótíma. Það skiptir meginmáli að ná yfirhöndinni í glímunni við tölvupóstinn. Gerðu það núna - við hjálpum þér!
Meðhöndlun tölvupósts er eitt af því sem felst í PEP þjálfun hjá IBT. Þjálfunin fer fram á vinnustöð hvers þátttakanda og unnið er með raunveruleg verkefni starfsmannsins. Enginn tími fer því til spillis og þjálfunin skilar árangri strax.
PEP þjálfun nær yfir þrjá mánuði. Auk einkaþjálfunar við skrifborð þátttakenda hafa þeir aðgang að ráðgjafa sínum á tímabilinu. Til að ná fram varanlegum breytingum á vinnulagi þarf tíma, það gerist ekki á einum degi. Þess vegna látum við 3-5 vikur líða milli þeirra daga sem við veitum einkaþjálfun við skrifborð þátttakenda. Með því að ná tökum á PEP þjálfun sparast 4-6 klukkustundir í hverri viku, streitan verður minni og aukinn tími gefst í að sinna öðrum verkefnum eða áhugamálum. Minna álag - aukin afköst.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Jónatansson, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , sími 578 1500.
Frestunaráráttan er tímaþjófurinn- Gerðu það núna aðferðin!
Flest okkar eru sífellt að fresta einföldustu verkum bæði meðvitað og ómeðvitað. Flestir eru snillingar í að finna ástæður til að gera ekki það sem gera þarf; "ég hef ekki tíma" er algeng afsökun. " Ég held að hann hafi sagt að hann væri ekki við í dag, þess vegna reyndi ég ekki að ná í hann". " Þetta gæti nú tekið góðan tíma þannig að það er best að byrja ekki núna þar sem ég næ ekki að klára". Listinn yfir ástæður þess að koma sér ekki að verki er endalaus.Hvernig verja starfsmenn tíma sínum á vinnustað?IBT í Bandaríkjunum hefur gert langtímakönnun á því hvernig starfsfólk ver tíma sínum á vinnustað. Safnað var upplýsingum um fimm ára skeið meðal ríflega 1000 starfsmanna (stjórnenda, millistjórnenda og almennra starfsmanna) í fjölbreyttum atvinnugreinum í Bandaríkjunum. Könnunin sem kallast WPI (White Collar Productivity Index) sýnir sláandi aukningu á þeim tíma sem fer í meðhöndlun tölvupósts frá árinu 2000 eða um 120%, úr fjórum stundum á viku í 8,8 á síðasta ári. Þá hefur óskilvirk fundaseta aukist um 200% á sama tíma og yfirvinna um 30%! Slíkar upplýsingar eru ómetanlegar fyrir fyrirtæki sem vilja gera betur. PEP þjálfun gerir fólki kleift að endurheimta nokkuð af þessum tíma með réttum aðferðum!