Við bjóðum upp á fjölbreytt námskeið og þjálfun sem miðar að aukinni skilvirkni, hafðu samband í síma 578-1500 og fáðu nánari upplýsingar og kynningu.
Sérgrein IBT er skipulagsþjálfun. Meðal nýjunga er námskeið í töluvupóstssamskiptum sem og skilvirkari fundum. Notendur Outlook og Lotus Notes fá almennt alveg nýja sýn á hvernig hægt er að nota tölvupóstinn sem miklu öflugra tól í samskiptum viðverkefnastjórnun og tímastjórnun. Í endurmati kemur oftast fram að viðskiptavinir okkar hvað ánægastir með hversu praktísk námskeiðin eru. Þau eru hæfileg blanda af fyrirlestri, umræðum, verkefnum og sýnikennslu.
IBT á Íslandi var stofnað sumarið 2005 og hóf formlega starfsemi í október sama ár. Við erum í Netlu, skrifstofugörðum, Nethyl 2b, 110 Reykjavík. Síminn er 578-1500
Starfsmenn IBT á Íslandi eru tveir: Gunnar Jónatansson og Rósa Kristín Benediktsdóttir .
Gunnar er framkvæmdastjóri og PEP þjálfari IBT á Íslandi. Hann hefur próf í verkefnastjórnun frá HÍ. Gunnar var áður framkvæmdastjóri húsnæðisfélagsins Búseta hsf. og starfaði einnig sem leiðbeinandi á stjórnunarnámskeiðum og hefur sérhæft sig í fundastjórn og fundaskipulagi. IBT Scandinavia sér um grunn og framhaldsþjálfun allra starfsmanna IBT og tekur Gunnar reglulega þátt í henni.
Rósa Kristín er PEP þjálfari hjá IBT. Hún starfaði lengi við innflutning og vörustjórnun hjá tölvufyrirtæki og eftir það við verkefnastjórn hjá Ungum frumkvöðlum. Rósa hefur leiðbeint og haldið námskeið um framsögn, framsetningu og fundatækni. IBT Scandinavia sér um grunn og framhaldsþjálfun allra starfsmanna IBT og tekur Rósa reglulega þátt í henni.