Hámörkun afkasta
Samspil PEP og markþjálfunar
Markþjálfun er leið til að laða fram það besta í fólki. Henni er hægt að beita á ýmsa vegu bæði tengt vinnu og einkalífi. PEP þjálfun byggir að miklu leyti á aðferðum markþjálfunar en þó með þeim grundvallarmun að stjórnandinn kynnist aðferðum og áherslum PEP við tímastjórnun, skipulag og áætlanagerð.
Árangur strax
Með þvi að byggja á aðferðum PEP nær stjórnandinn strax sýnilegum árangri með aukinni yfirsýn yfir þau viðfangsefni sem þegar liggja fyrir. Markþjálfun er síðan beitt við að ná fram öflugri framtíðarsýn og markmiðasetningu.
IBT ábyrgist árangur með PEP-Markþjálfun
Gunnar Jónatansson hefur leitt um 450 einstaklinga í gegnum PEP þjálfun með góðum árangri. Hann hefur lokið ACC markþjálfun hjá Evolvia ehf. en hefur einnig lokið Manager as Coach þjálfun hjá IBT Learning and development service
Ef viðskiptavinurinn er ekki fullkomlega ánægður þá er ekki greitt fyrir þjónustuna, svo einfalt er það.
Áhersla PEP-Markþjálfun:
• draga úr truflun, minnka áreiti
• tíma og verkefnastjórnun
• takmörkun á upplýsingaálagi, sérstaklega með tölvupósti
• betri og miklu skilvirkari fundir
• jafnvægi á frí- og vinnutíma
• beiting persónulegra styrkleika
Fyrirkomulag eftir óskum og þörfum. Gæti t.d verið svona:
Fyrsta skiptið : Kynni, sameiginleg sýn, einbeiting, skilgreining á persónulegu ROI á tíma og orku. Framtíðin og breytingar. Tími til að hugsa. (Tekur um 1-3 klst).
Annað skiptið: Samstarf við nánasta samstarfsmanninn. Skipulag til að ná sem mestu út úr samstarfi sem leiðir til bættrar skilvirkni. Betra Outlook-Lotus. Betri leiðir við að halda yfirsýn. Útrýming endurtekinna verkefna. Kaup á nýjum tíma með vinnu í lotum. (3 vikum eftir fyrsta skiptið. Tekur 1- 3 klst).
Þriðja skiptið: Áætlanagerð, utanumhald verkþátta, endurlífgun frá "death-by-meeting", rauntími til ráðstöfunar.
Jafnvel er spurt:
1. Hvert viltu fara?
2. Hvar ertu núna?
3. Hvað þarftu að gera til að komast á áfangastað?
(4 – 6 vikum eftir annað skiptið. Tekur um 2-3 klst)
Framhald og/eða upprifjun síðar eftir óskum viðskiptavinarins
Gæti einnig verið svona:
Samningur um 3ja mánaðatímabil, þar sem fundað er vikulega eða aðra hvora viku. Fyrstu tveir fundirnir fara fram á vinnustöð viðkomandi þar sem áherrslan er á PEP fræðin. Næstu fundir sem fylgja geta farið fram í fundaraðstöðu eða jafnvel á gangi um hverfið. Þá er áherslan á aðferðir markþjálfunar fyrst og fremst.