Fundir og framsögn - Leikreglur í lýðræði
Lærðu að koma hugmyndum þínum á framfæri á markvissan hátt og spila eftir þeim leikreglum sem gilda á fundum. Hvort sem þú vilt berjast fyrir góðum málstað, koma sjónarmiðum á framfæri, ná fram æskilegri niðurstöðu eða efla virkni þína í samfélagi lýðræðis, þá er mikilvægt að koma vel fyrir og þekkja leiðirnar að settu marki.
Fundir ættu alltaf að hafa skýran tilgang. Hvernig fundir þróast fer alltaf eftir því hversu þátttakendur eru vel að sér í fundatækni, hvernig þeir koma fyrir sig orði og beita rökfestu til að vinna máli sínu fylgi.
Á námskeiðinu Fundir og framsögn-leikreglur í lýðræði eru kenndar og æfðar leiðir til að ná árangri á skilvirkan, áhrifaríkan og umfram allt árangursríkan hátt.
Skráning með tölvupósti hér Látið koma fram nafn þátttakenda, kennitölu og greiðanda.
Hvað færðu út úr námskeiðinu :
Tilgangur funda. Hinar ýmsu tegundir funda og mikilvægi þess að vita til hvers fundurinn er haldinn og hvaða afurð honum er ætlað að framleiða.
Undirbúningur funda. Hvort sem þú ert fundarstjórinn, ritarinn, ræðumaður, tillöguflytjandi eða almennur þátttakandi þá er undirbúningur mikilvægur.
Dagskrá funda. Er hún nauðsynlegt í öllum tilfellum? Hvert er vægi málanna á dagskránni? Á alltaf að bjóða upp á “önnur mál” ? Hvernig í ósköpunum getur maður haldi fólki við dagskrá án þess að umræðan fari út og suður?
Tímasetningar. Eru fjárans fundirnir að teygjast úr hófi? Af hverju er alltaf beðið eftir fólkinu sem kemur of seint? Hvernig er hægt að láta fundinn byrja og enda á réttum tíma?
Fundaraðstaðan. Það eru ýmsar leiðir til að stilla upp borðum og stólum og yfirleitt er ein leiðin betri en önnur eftir því um hverskonar fund er að ræða.
Þátttakendur á fundum. Hverjum er boðið og hverjir mæta? Láta allir ljós sitt skína eða ráða þeir öllu sem tala lengst. Hvernig getum við verið virk og málefnaleg?
Hvað liggur þér á hjarta? Ert þú í hópi fólks sem vildi svo gjarnan leggja orð í belg en hræðist tilhugsunina? Við gefum þér góð ráð til að nýta þér streituna og tala án þess að falla í yfirlið.
Uppbygging á málflutningi. Þú færð uppskriftina, æfir hana og tileinkar þér tæknina við að segja nákvæmlega það sem segja þarf til að ná tilsettum árangri.
Meðferð á tillögum. Lærðu að samþykkja, flytja, breyta eða fella tillögur á réttan hátt samkvæmt alþjóðlegum reglum um fundarsköp.
Plús …
• Þú eykur sjálfsöryggi þitt á öllum vígstöðvum í vinnunni, í fjölskyldunni og í vinahópnum
• Þú verður skilvirkari í vinnubrögðum og tíminn nýtist þér mun betur.
• þú öðlast virðingu sem virkur og skilmerkilegur þátttakandi á fundum.
• Þú áttar þig betur á því hversu öflugt tæki góður fundur er.
• Þú getur breytt hugmyndum í skuldbindingar
• Þú getur gert gott betur...
Nánari upplýsingar gefur Rósa í símum 578-1501 og 664-6550 eða Gunnar í símum 578-1500 eða 664-6550.