Viðskiptavinir IBT eru fyrirtæki í mjög fjölbreyttum rekstri m.a:
Actavis-Eimskip-Glitnir-Gildi-Landsbankinn-Securitas-Íslensk erfðagreining-Olís-Vistor hf.-Maritech-Míla-Ormsson-MS-Kraftvélar-Sorpa-Ríkiskaup-Vinnueftirlitið-Síminn-Oddi-Sláturfélag Suðurlands -Endurmenntun Háskólans -Hafnarfjarðarbær -Orkuveita Reykjavíkur - Gagnaveitan
Umsögn frá Actavis:
IBT hefur haldið nokkur námskeið hjá Actavis á Íslandi síðan árið 2006 með góðum árangri. Við höfum nokkrum sinnum haldið svokalla PEP þjálfun sem hefur reynst vel. Jafnframt höfum við haldið námskeiðið Markviss tölvupóstur – 7 lyklar. Helsti kostur PEP þjálfunarinnar er að hún er miðuð að þörfum hvers og eins, þar sem þjálfarinn fer yfir með hverjum og einum hvernig best er að skipuleggja vinnuna. Stór hluti starfsmanna Actavis á Íslandi tekur á móti og sendir fjöldann allan af tölvupósti á degi hverjum og oft getur reynst erfitt að halda utan um allan þennan póst svo vel sé. Það sem stendur uppúr eftir námskeiðin sem IBT hefur haldið hjá Actavis er að starfsfólk nær að halda betur um verkefni og tölvupóst þar sem þau eru sett strax í ákveðið ferli og þar af leiðandi nær fólk að skipuleggja sig betur. Um leið hafa starfsmenn okkar lært aðferðir til að senda markvissari pósta, náð betri tökum á tölvupóstkerfinu í heild sinni og nýtt möguleika kerfisins betur en áður. Skipulagið nær líka út fyrir tölvuskjáinn því í PEP þjálfuninni eru kenndar aðferðir til að halda betur utan um þau gögn sem starfsmenn þurfa að vinna í á degi hverjum og af nógu er að taka hér hjá okkur! Ég get því mælt með námskeiðunum; þátttakendur læra að halda betur utan um tölvupóstinn, skipuleggja tíma sinn betur og fylgja verkefnum sínum betur eftir þar til þeim er lokið. Við munum án efa halda áfram að bjóða upp á þessi námskeið enda hefur verið vel af þeim látið af okkar starfsfólki.
Hildur Arnars Ólafsdóttir, sérfræðingur í þjálfunar- og þróunardeild
Umsagnir frá Landsbankanum:
Undanfarin ár höfum við nýtt okkur PEP skipulagsþjálfun frá IBT fyrir fjölmarga starfsmenn. Það sem við erum ánægðust með er að þjálfarinn sest hjá hverjum og einum og leiðir hann í gegnum endurskipulagningu bæði á skrifborðinu og í tölvunni. Svona einstaklingsmiðuð nálgun á starfsstöð viðkomandi eykur líkurnar á raunverulegri breytingu á vinnubrögðum.Halla Jónsdóttir, fræðsludeild
Mjög gott og hjálpar mér við skipulagningu. Hef náð betri tökum á tölvupósti, pappírsgögnum og skipulegg daginn og vikuna mun betur en áður. Skilaboð námskeiðsins voru sett fram á skýran hátt og góð tenging með raunverulegum dæmum styrkti boðskapinn til muna. Mjög skynsamlegt að dreifa þessum þremur heimsóknum á langan tíma. Þjálfarinn vakti mig til umhugsunar um vinnutækni mína með því að spyrja erfiðra og krefjandi spurninga.
Umsagnir frá Ormsson
Hef tileinkað mér nú þegar sumt af því sem PEP kenndi mér en þarf að bæta vinnubrögð mín til að fullnýta möguleikana. Efnið var vel framsett og athyglisverðar tilvitnanir.Nálgunin er prýðileg, einkaþjálfunin markviss og góð.
Umsagnir starfsmanna ASK arkitekta:
Eg skoða nú vinnuumhverfi og vinnubrögð í nýju ljósi. PEP á eftir að hjálpa mér við að skipuleggja og fá betri yfirsýn yfir verkefni og vinnu. Ný hugsunarháttur varðandi notkun á tölvupósti hefur hjálpað mér við verkefna og tímastjórnun. Tíminn nýtist betur með “Gerðu það núna” aðferðinni. Að losa sig við allar óþarfa upplýsingar gefur mér auka orku og hreinsar hugann. Hún gerði mér mjög gott þessi hugsunarbreyting gagnvart tölvupósti: ÉG ræð því hvenær ég svara, tölvupóstur ræður ekki vinnuskipan minni. Gott var að læra betur á Outlook því þar eru verkfæri sem ég kunni ekki nógu vel á áður. Það kom mér á óvart hvað það hefur mikil áhrif að skrifa niður sín takmörk og markmið, ég nýti mér það líka í privatlífinu.