Til að spila í takt þá þarf stundum að stilla saman strengi

Allir stjórnendur þurfa reglulega að safna liði sínu saman til skrafs og ráðagerða. 

Viðfangsefnin eru fjölbreytt og sum ekki auðveldlega leyst í hefðbundnu vinnuumhverfi .
IBT, í samvinnu við stjórnandann, skapar réttu umgjörðina og veitir starfsmönnum leiðsögn til úrlausna á hverskyns málum. Í vinnusmiðjum er skapaður hvetjandi vettvangur til frjórrar hugsunar. Liðsheildin er í aðalhlutverki. Mörgum kemur á óvart hversu mikið er gert á skömmum tíma við réttar aðstæður.

Ör-stefnmótun er öfug leið til að stilla saman strengi og greina aðalatriðin frá aukaatriðum.
Elementin brjóta upp daginn og þar skoðum við persónuleka hvers og eins með japanskri leikfimi.
Myndbandsmaraþon dregur fram leynda drauma og frama á hvíta tjaldinu.