Aðal markmið okkar fyrir þína er hönd er tómt innbox í lok dags!

Við bjóðum tvenns konar námskeið um notkun tölvupósts.

Námskeiðin eru óháð tegund tölvupóstkerfis.

Þjálfun í notkun og umgengni við tölvupóst gefur strax árangur

Tölvupósturinn er ein helsta samskiptaleið starfsmanna fyrirtækja. Kannanir sýna að starfsmenn eyða sífellt meiri tíma í innboxinu með mismiklum árangri. Sjö lykla þjálfun skilar strax árangri, betri yfirsýn og utanumhaldi. Með tölvupóst sem samskiptavalkost, vöndað innihald og skýrari efnislínu verður notkunin markvissari, svörun betri og fjölda sendinga fækkar. Gefum góð ráð um hvernig hægt er að minnka þann tíma sem fer í vafstur við tölvupóst og auka þann tíma sem sem nýtist í verkefnnavinnu. Væri ekki frábært að standa upp frá tómu innboxi í lok hvers dags?

Sjö lyklar að skilvirkari tölvupósti I

Tími 2,5 – 3 klst

Hámarksfjöldi 20 þátttakendur

Lýsing: Fyrirlestur og umræður um 7 lykla að skilvirkari tölvupósti og þær reglur sem gilda um tölvupóst í viðkomandi fyrirtæki. Þátttakendur vinna tvenn verkefni þar sem móttekin og sendur póstur er skoðaður, og metinn með tilliti til lykla IBT og reglna fyrirtækisins. Að lokum er samantekt og sýnikennsla.

Markmið þjálfunarinnar er að þátttakendur afgreiði fyrr og betur þau erindi sem koma í pósthólfið, draga úr truflun frá póstinum og skrifa betri og skilvirkari póst til annara.

Sjö lyklar að skilvirkari tölvupósti II

Tími 8 klst

Hámarksfjöldi 10 þátttakendur (þurfa að hafa starfstöð í innan við 2-300 metra radíus)

Lýsing: Fyrirlestur og umræður um 7 lykla að skilvirkari tölvupósti og þær reglur sem gilda um tölvupóst í viðkomandi fyrirtæki.Þátttakendur vinna tvenn verkefni þar sem móttekin og sendur póstur er skoðaður og metinn með tilliti til lykla IBT- PEPWORDWIDE og reglna fyrirtækisins. Þessi hluti tekur 1,5 klst og að honum loknum snúa þátttakendur til vinnustöðva sinna en fá persónulega eftirfylgni og þjálfun við sínar tölvur. Þar er farið í ítarefni sem hæfir verkefnum hvers og eins t.d um notkun á task lista, calendar ofl.

Markmið þjálfunarinnar er að þátttakendur afgreiði fyrr og betur þau erindi sem koma í pósthólfið, draga úr truflun frá póstinum og skrifa betri og skilmerkari póst til annara.