7 lyklar að markvissari fundum
Við bjóðum fjölbreytt námskeið um markvissari fundi og aðlögum efnið að þörfum viðskiptavinarins.Þjálfun í markvissari fundum gefur strax árangur
Fundir fylgja daglegum rekstri fyrirtækja og eru ásamt tölvupóstinum ein helsta samskiptaleið starfsmanna. Sá tími sem fer í fundi er mjög dýrmætur enda sitja yfirleitt dýrustu starfsmennirnir hvað lengst á fundum.
Betri árangur - skýr niðurstaða
Þegar fundur er boðaður þarf að vera ljóst hver tilgangur hans er og hverju honum er ætlað að skila. Með þetta að leiðarljósi má mögulega fækka fundum og klárlega stytta þá. Með betri undirbúningi koma fram betri ákvarðanir, öflugri rökræða og öll sjónarmið njóta sín. Afurð fundar ætti að vera skýr aðgerðarlisti, og niðurstaða fundarins öllum fundarmönnum ljós.Þetta er mikilvægasta spurningin:
Er þú skipuleggur árangursríkan fund, hvað viltu fá út úr honum sem þú hafðir ekki áður?• Ef svarið er “annan fund” þá hefur eitthvað misfarist.
• Spurðu þig þessarar spurningar áður en þú ferð fram á tíma fólks.
• Spurðu sjálfa/nn þig áður en þú ráðstafar tíma þínum í fundinn.
• Ef svörin eru ekki nógu skýr, haltu þá áfram að spyrja eða slepptu því að halda fundinn.
• Ekki gera neinar málamiðlanir varðandi þetta atriði.
Fundir verða að skila árangri !
Viðskiptavinir IBT eru flestir sammála um að fundir í fyrirtækjum mættu almennt vera betur skipulagðir og þeim betur stjórnað. Í huga flestra komu fyrr upp minningar um slæma fundi en virkilega góða. Fundir geta verið frábært tæki til stýra fyrirtækjum, deildum eða einstökum verkefnum.Fundartækniþjálfun IBT byggir á sömu hugsun og PEP þjálfun þ.e að efla einstaklinginn til virkar þátttöku í hópi, hvaða hlutverki sem hann gegnir þar. Fjallað er um margvíslegar gerðir og tilgang funda og aðferðir við að framkvæma þá. Lykilatriðin eru síðan hvernig er unnið með þær ákvarðanir sem teknar eru af hópi fundarmanna, hvort heldur þeir eru tveir, tíu eða fleiri. Fundanámskeið IBT eru stutt og hnitmiðuð og útfærð eftir þörfum.
Höfum nýlega gefið út rafbók um 7 lykla fundi er fjallar um 7 lykla nálgun IBT
Fjöldi þátttakenda 10-25 manns.
Fyrir alla sem reglulega (amk mánaðarlega) halda eða sitja fundi.
Markmið: Að þátttakandinn tileinki sér að taka ábyrgð á hlutverki sínu sem: boðandi, stjórnandi, ritari og þátttakandi á fundi. Fjallað er um tegundir funda, dagskrá, stjórnun, örvun eða lokun umræðna og afurðir og aðgerðir að fundi loknum.
Efnistök: Fundarferlið – fjallað um mismunandi gerðir funda. Hlutverk fundarmanna – fjallað er um þrjú helstu hlutverkin sem mikilvægt er að kunna til að árangur náist. Verkefnavinna sem miðar að því að þátttakendur átti sig á hæfni sinni til fundaþátttöku og finni leiðir til að efla hana.
Fjöldi þátttakenda 5 -15 manns.
Fyrir stjórnendur, verkefnastjóra og þátttakendur í verkefnateymum.
Markmið: Að þátttakendur skilgreini tilgang funda, mikilvægi þeirra sem stjórntækis við að ná markmiðum í starfi og finni leiðir til að efla skilvirkni funda með áætlanagerð, framsetningu, tímasetningum ofl.
Efnistök: Fjallað er um formgerðir funda og hvernig þeir nýtast sem stjórntæki við framvindu verkefna og stefnumótandi ákvaðanatöku, útfærslur og innihald fundaáætlana. Þátttakendur útbúa raunverulegar áætlanir hver fyrir sig eða fyrir hópinn sinn ef svo ber undir.
Fyrir stjórnendur er lögð sérstök árherslan er á lykla 1 og 2. Þátttakendur upplifa fundaþörfina með öðrum hætti eftir að hafa skoðað tilgang og eignarhaldið með nýjum gleraugum!
7 Lyklar, markvissir fundir 1
90-180 mín.Fjöldi þátttakenda 10-25 manns.
Fyrir alla sem reglulega (amk mánaðarlega) halda eða sitja fundi.
Markmið: Að þátttakandinn tileinki sér að taka ábyrgð á hlutverki sínu sem: boðandi, stjórnandi, ritari og þátttakandi á fundi. Fjallað er um tegundir funda, dagskrá, stjórnun, örvun eða lokun umræðna og afurðir og aðgerðir að fundi loknum.
Efnistök: Fundarferlið – fjallað um mismunandi gerðir funda. Hlutverk fundarmanna – fjallað er um þrjú helstu hlutverkin sem mikilvægt er að kunna til að árangur náist. Verkefnavinna sem miðar að því að þátttakendur átti sig á hæfni sinni til fundaþátttöku og finni leiðir til að efla hana.
7 Lyklar, markvissir fundir 2
90-180 mín.Fjöldi þátttakenda 5 -15 manns.